
Vistor
Markmið Vistor er að vera ákjósanlegasti samstarfsaðilinn á íslenska lyfjamarkaðinum, í huga viðskiptavina, birgja, starfsmanna og samfélagsins.

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf viðskiptastjóra.
Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, vill byggja upp sterk tengsl og hefur metnað fyrir árangri og að hafa áhrif. Starfið felur í sér markaðssetningu og sölu lyfja ásamt uppbyggingu traustra tengsla við heilbrigðisstarfsfólk. Þú munt vinna náið með heilbrigðisstarfsfólki, samstarfsaðilum og alþjóðlegum birgjum við að miðla þekkingu, þróa viðskiptasambönd og skapa ný tækifæri.
Hvort sem þú ert nýútskrifaður nemi eða með reynslu að baki skiptir mestu máli að þú sért forvitin/n, lausnamiðuð/lausnamiðaður og tilbúin/n að læra, taka frumkvæði og ná árangri í góðu teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og þróa markaðs- og viðskiptastarf á sviði frumlyfja
- Byggja upp og efla traust tengsl við heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila
- Miðla faglegri þekkingu með fundum, kynningum, ráðstefnum og fræðsluverkefnum
- Greina og þróa ný tækifæri og taka virkan þátt í viðskiptaþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á heilbrigðissviði
- Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfni
- Frumkvæði, drifkraftur, lausnamiðað hugarfar og metnaður til að ná árangri
- Áhugi á heilbrigðismálum og löngun til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini
- Áhugi á að nýta sjálfvirkni og stafrænar lausnir til að bæta ferla og auka árangur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Advertisement published9. October 2026
Application deadline16. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
DriveProactiveHuman relationsMarket analysisMarketingPhone communicationEmail communicationDefinition of target groupsSales
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Hjúkrunarfræðingur í hlutastarf um helgar – Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Hjúkrunarfræðingur - Hrafnista Boðaþingi
Hrafnista

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Lyfja Garðatorgi - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja