
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Ertu málari eða hefur starfað við málningu og langar að nýta þekkingu þína á annan hátt?Hjá Húsasmiðjunni færðu tækifæri til að vinna með fagfólki, veita ráðgjöf og hjálpa bæði einstaklingum og fagfólki að velja réttu lausnirnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að öflugum liðsmanni með góða þekkingu á málningu og málningarvinnu til að leiða málningar- og múrdeild Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur starfað við málningu eða lokið iðnmenntun í greininni og vill nýta fagþekkingu sína í ráðgjöf og sölu.Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla fagþekkingu sinni og veita viðskiptavinum bæði fagfólki og einstaklingum framúrskarandi ráðgjöf.
Helstu verkefni:
- Fagleg ráðgjöf um málningu, múr og tengdar vörur, almenna yfirborðsmeðferð og efnisval
- Sala og þjónusta við einstaklinga
- Sala, sókn og ráðgjöf við málara og annað fagfólk
- Umsjón með málningardeild
- Pantanir og birgðastýring
- Framsetning vara og útstillingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla í málningariðn er mjög æskileg.
- Góð þekking á málningu, yfirborðsmeðferð og efnisvali.
- Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við einstaklinga og fagmenn.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi á sölu og þjónustu.
- Stundvísi og ábyrgð í starfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Aðgangur að orlofshúsum.
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
- Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Advertisement published13. October 2026
Application deadline27. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Sólvangur 7, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PositivityAmbitionConscientiousIndependenceSalesCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI