

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum leiðtoga til að halda utan um daglegan rekstur í Lyfju Reyðarfirði. Starfið felst í daglegri verkstjórn, mönnun og utanumhaldi með útibúinu. Viðkomandi tryggir að verklag sé samkvæmt gæðastefnu fyrirtækisins auk þess að ganga í önnur störf tengd ráðgjöf og sölu til viðskiptavina.
Hlutverk og ábyrgð
- Sér um daglegan rekstur lyfjaútibús
- Framfylgir gæðastefnu og sinnir eftirliti með starfsemi samkvæmt gæðahandbók
- Hefur frumkvæði að upplýsingagjöf til lyfsala vegna atriða í rekstri, vegna húsnæðis, afleysinga eða annarra þátta í starfsemi útibúsins
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð
- Stjórnunarhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af þjónustustörfum
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Um framtíðarstarf er að ræða og vinnutíminn er 11:00-18:00 alla vika daga.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá Lyfju, ELKO, Krónunni og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jónsdóttir, lyfsali Lyfju Neskaupstað í síma 477-1118 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Icelandic
English










