
Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Viltu ganga til liðs við skemmtilegan og samhentan hóp á Tannlæknastofu Grafarvogs?
Á Tannlæknastofu Grafarvogs starfar samhentur og skemmtilegur hópur sjö kvenna, þriggja tannlækna og fjögurra aðstoðarmanna. Við leitum nú að jákvæðum, stundvísum og áreiðanlegum einstaklingi til að ganga til liðs við hópinn.
Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði og tvítyngi er mikill kostur.
Við hvetjum sérstaklega einstaklinga sem tala mjög góða íslensku og hafa jafnframt annað móðurmál til að sækja um.
Öll tungumál eru velkomin og kunnátta í pólsku er sérstaklega kærkomin.
Reynsla er kostur en ekki skilyrði. Umsækjendur án fyrri reynslu eru einnig velkomnir, enda sjáum við um nauðsynlega þjálfun og kennslu á vinnustaðnum.
Starfið er fjölbreytt og gefandi. Starfið felst í samskiptum við viðskiptavini, aðstoð og vinnu við tannlæknastól, sótthreinun og þrif áhalda, símasvörun, tímabókunum, afgreiðslu, innkaup og fleira.
Teymisvinna er við tannréttingar með Invisalign skinnum.
Tannlæknastofan er bæði með Facebook, Instagram og Tik tok síðu þar sem hægt er að fá innsýn í dagleg störf okkar.
- Móttaka viðskiptavina, símavarsla, aðstoð og vinna við tannlæknastól, afgreiðsla í móttöku, notkun á þrívíddarskanna, sótthreinsun, áfylling efna og áhalda og fleira.
-
Umsóknir verða metnar jafnóðum og áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst.
- Stundvísi, frumkvæði, metnaður í starfi, létt skap og vilji til að blanda geði við fólk, vera hvetjandi við börn og fullorðna.
- Íslenskukunnátta er skilyrði. Það er kostur að vera tvítyngdur.
- Samkvæmt núgildandi reglum þarf starfsmaður að hafa unnið í 3 ár á tannlæknastofu til að fara í raunfærnismat og öðlast réttindi tanntækna.
Icelandic
English
Polish
Danish










