
Bílanaust
Stefna Bílanausts er að vera leiðandi fyrirtæki á innanlandsmarkaði á sviði varahluta og bílatengdra vara. Fyrirtækið byggir á traustum grunni sem rekja má aftur til ársins 1962.
Bílanaust rekur sex verslanir. Stærsta verslunin er á Bíldshöfða 12 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi og Akureyri.
Skrifstofur eru til húsa á Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður.
Jafnframt rekur fyrirtækið öfluga söludeild og fyrirtækjaþjónustu með reynslumiklum sölumönnum og vörumerkjastjórum.
Bílanaust kappkostar að bjóða vörur frá leiðandi birgjum á samkeppnishæfu verði.
Sem dæmi um þekkt vörumerki sem Bílanaust dreifir eru Bosch, Varta, Nipparts, ABS, Hella, NGK, MAPCO, Denso, FRAM, Osram, Turtle Wax og Mothers.

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Vegna aukinna verkefna leitum við að starfsmanni í verslun okkar á Akureyri í 100% starf. Starfið felur í sér að að veita viðskiptavinum Bílanausts leiðsögn og framúrskarandi þjónustu.
Afgreiðslutími er frá 08:00 til 18:00 alla virka daga og á laugardögum 10:00 til 14:00. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi.
Hæfniskröfur:
-20 ára eða eldri.
-Reynsla af afgreiðslu á varahlutum og eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
-Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega.
-Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
-Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
-Skipulagsfærni.
-Hreint sakavottorð.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Bílanaust - Fyrir fólk á ferðinni
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla á vörum.
- Halda verslun snyrtilegri.
- Veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
- Skipulagsfærni.
Advertisement published25. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Furuvellir 15, 600 Akureyri
Type of work
Skills
Customer checkoutMechanicPlanningCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI