Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna

Við sækjumst eftir öflugum lífeindafræðingi með brennandi áhuga á storkurannsóknum, sem er tilbúinn að taka þátt í að þróa nýtt og krefjandi sérfræðistarf í samhentu teymi okkar á rannsóknakjarna Landspítala. Þar fara fram greiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í blóðmeinafræði og klínískri lífefnafræði. Á deildinni starfa á annað hundrað einstaklingar og leggjum við ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart vinnustaðnum og samstarfsfólki.

Við viljum ráða einstakling sem býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviði storkurannsókna. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, hvetjandi og hafa metnað fyrir þróun og eflingu samstarfsfólks, gæðastarfi, teymisvinnu og jákvæðum úrlausnum. Þekking á vísindastarfsemi og kennslu á sviði lífeindafræði er kostur.

Starfshlutfall er 100%, unnið er í dagvinnu og er upphaf starfa 1. nóvember 2026.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir, sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með storkurannsóknum
  • Vinnur að gæðamati, aðferðalýsingum og verklagsreglum
  • Þróar, framkvæmir og metur nýjungar í rannsóknum ásamt stjórnendum deildar
  • Skipuleggur og tekur þátt í kennslu heilbrigðisstétta
  • Metur fræðsluþarfir starfsfólks, fræðir og metur árangurinn
  • Hvetur og aðstoðar starfsfólk við að efla faglega færni og þroska
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem lífeindafræðingur
  • Íslenskt sérfræðileyfi sem lífeindafræðingur
  • Framúrskarandi hæfni í íslensku og góð enskukunnátta
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
  • Hæfni og geta til að starfa í og leiða teymi
  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni
  • Þekking á vísindastarfsemi og kennslu á sviði lífeindafræði er kostur
Advertisement published30. September 2026
Application deadline23. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags