Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sérfræðingar í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum

Lausar eru til umsóknar tvær stöður sérfræðilækna í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Starfshlutfall er 60-90% og hægt að hafa samkomulag um upphaf starfstíma. Um er að ræða fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem boðleiðir eru stuttar og tækifæri til að taka virkan þátt í faglegri þróun, gæðastarfi og öflugri teymisvinnu.

Um starfseininguna

Á deildinni starfar samstilltur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu. Fjölbreytt og öflug starfsemi á sviði kvensjúkdómaaðgerða fer fram á skurðstofum flesta daga vikunnar. Veitt er sérhæfð fæðingaþjónusta þar sem konur geta fætt við fullar 37 vikur. Aðgangur er að skurðstofum þar sem svæfingalæknar eru á vakt allan sólarhringinn. Svæfingalæknar HVE eru þjálfaðir í meðferð nýbura og starfa í góðri samvinnu við nýburalækna á Vökudeild Landspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fæðingaþjónusta og mæðravernd
  • Göngudeildarþjónusta
  • Skurðaðgerðir
  • Vaktþjónusta á fæðinga- og kvensjúkdómadeild
  • Þátttaka í gæðastarfi og faglegri þróun
  • Þáttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun sérnámslækna og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sérfræðiviðurkenning í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum og gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Bakvaktarfærni
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Jákvæðni, lipurð og áreiðanleiki í starfi
  • Æskilegt að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu
Advertisement published12. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Merkigerði 9, 300 Akranes
Type of work
Professions
Job Tags