Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild

Langar þig í skemmtilegt starf í styðjandi starfsumhverfi, þar sem góður starfsandi ríkir og virðing, jákvæðni og samvinna eru höfð í fyrirrúmi?

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingum til liðs við öflugan hóp starfsfólks á meltingar- og nýrnadeild. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er eftir samkomulagi. Ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Meltingar- og nýrnadeild er 19 rúma bráðalegudeild sem sinnir sjúklingum með bæði bráða og langvinna sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum auk annarra sjúkdóma á sviði bráðra lyflækninga. Við leggjum mikla áherslu á að skapa uppbyggjandi starfsumhverfi, markvissa umbótavinnu og tækifæri til eflast og þróast í starfi.

Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Guðrúnu Yrsu, hjúkrunardeildarstjóra.

Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta
Responsibilities
Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga með sjúkdóma í meltingarfærum
Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli, við meðferð og eftirfylgd sjúklinga í gegnum sjúkdómsferlið
Lyfjagjafir líftæknilyfja og stuðningur við sjúklinga með sjúkdóma í meltingarfærum
Þróun ferla og nýrra verkefna á göngudeild meltingarsjúklinga
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við legudeildir sérgreina
Advertisement published2. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Type of work
Professions
Job Tags