Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Viltu vinna að almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu?

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins (AHS) leitar að framsýnum einstakling sem hefur áhuga og metnað til að vinna að almannavörnum fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Starfið felur m.a. í sér að tryggja sem best velferð íbúa aðildarsveitarfélaganna með forvörnum, leiðsögn og viðbrögðum við almannavarnaástandi í samstarfi við sveitarfélögin og neyðarstjórnir þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

·        Koma að og eftir atvikum leiða og/eða samræma ýmsa þætti sem snerta starfssemi er þarf að vera órofin hjá sveitafélögunum í almannavarnarástandi

·       Starfa náið með neyðastjórnum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu

·       Þátttaka í áhættumati/áfallaþoli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu

·       Kanna möguleika á áhættuminnkun á svæðinu og eftirfylgni hennar

·       Undirbúa viðbrögð við atburðum, s.s. með viðbragðsáætlunum, leiðbeiningum og kennsluefni, ásamt æfingum

·       Taka þátt í aðgerðum og tilfallandi verkefnum  þegar lýst hefur verið yfir almannavarnastigi eða í annars konar viðbragði utan almannavarnaástands

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi

·         Meistaranám kostur en ekki skilyrði

·         Haldbær reynsla eða þekking af almannavörnum æskileg

·         Reynsla af því að vera með kynningar fyrir framan hóp kostur

·         Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi

·         Góð samskiptafærni

·         Jákvætt og lausnamiðað hugarfar

·         Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg, sem og kunnátta í ensku. Kunnátta í einu norðurlandamáli kostur

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar