
Gæða- og skjalastjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í stöðu Gæða- og skjalastjóra. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf sem heyrir undir Þjónustudeild embættisins.
Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
-
Ábyrgð á gæða- og skjalastjórnun embættisins og mótun stefnu á þeim sviðum, með áherslu á stafræna vegferð.
-
Samhæfing á gæðastarfi LRH og yfirsýn yfir hin ýmsu verkefni því tengdu.
-
Stýring og viðhald á gæðaskjölum á rafrænu gæðatorgi embættisins.
-
Eftirfylgni við skjalastefnu og mótun verklags við skjalastjórnun.
-
Stýring og þróun skjalakerfi LRH.
-
Ráðgjöf og stuðningur við verkefni starfsfólks á sviði gæða- og skjalamála.
-
Umsjón fræðslu og leiðbeininga í gæðamálum og skjalastjórnun fyrir starfsfólk LRH.
-
Umsjón með samskiptum LRH við Þjóðskjalasafn Íslands og aðra hagaðila.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla og þekking á gæðastjórnun og skjalastjórnun
-
Reynsla af innleiðingu rafrænnar skjalavistunar og stafrænum umbreytingaverkefnum
-
Þekking á skjalastjórnunarkerfi s.s GoPro
-
Þekking á opinberri stjórnsýslu og meðferð stjórnsýsluerinda
-
Reynsla af breytingastjórnun og fræðslu fyrir starfshópa
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
-
Frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol
-
Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð
-
Jákvætt og lausnamiðað viðhorf og sterk stafræn sýn
-
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.
Íslenska










