Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Rannsóknastjóri

Vilt þú hafa áhrif á framtíð rannsókna?
Háskólinn á Akureyri leitar að metnaðarfullum og drífandi rannsóknarstjóra sem vill efla rannsóknasamfélag skólans, styðja vísindamenn til árangurs og auka sýnileika rannsókna - innanlands sem á alþjóðavettvangi. Um 100% starf er að ræða.

Starfið heyrir undir forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfsstöðin er við Háskólann á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita stuðning við umsóknir um rannsóknarstyrki í samkeppnissjóði. 
  • Þróa og innleiða ferla fyrir umsóknarvinnu vegna umsókna til íslenskra og alþjóðlegra styrktaraðila.
  • Hafa yfirumsjón með eftirfylgni og regluvörslu eftir veitingu styrkja, þar með talið vegna rannsóknarsamninga, áfanga og lokaskýrslna. 
  • Kynna og miðla upplýsingum um styrktartækifæri fyrir akademískt starfsfólk.
  • Vera tengiliður við styrktaraðila, þar á meðal Rannís, Horizon Europe og NordForsk.
  • Koma á og viðhalda tengslaneti við viðeigandi ytri styrktaraðila og stofnanir.
  • Umsýsla með rafrænum styrkjakerfum fyrir HA.
  • Starfa í samstarfi við stjórnunar- og stoðeiningar háskólans, þar á meðal fjármálasvið, bókasafn og stjórnsýslu fræðasviða. 
  • Halda utan um tölfræði og upplýsingagjöf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er nauðsynlegt og doktorspróf er æskilegt. 
  • Þekking og reynsla af rannsóknarstörfum og rannsóknarumhverfi, þar á meðal umsýslu rannsóknarverkefna.
  • Reynsla af umsóknum í innlenda og alþjóðlega samkeppnissjóði og þekking á helstu rannsóknarstyrkjum.
  • Reynsla af störfum í háskóla er æskileg.
  • Reynsla af þróun verkferla, skipulagi og faglegri ráðgjöf telst kostur.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun telst kostur.
  • Starfið gerir miklar kröfur til framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar. 
  • Mjög góð færni í ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli, er nauðsynleg og færni í íslensku æskileg þá er færni í einu skandinavísku tungumáli kostur.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Skýrslur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar