
Vestfjarðastofa
Vestfjarðastofa er sjálfseignastofnun sem vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum og ráðgjöf og þjónustu tengda atvinnu- og byggðaþróun, frumkvöðlastarfsemi og menningu í víðum skilningi.

Verkefnisstjóri á Tálknafirði
Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Tálknafirði. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða á Tálknafirði og vinnur að eflingu byggðar og mannlífs á Tálknafirði.
Verkefnið er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Vesturbyggðar.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Tálknafirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
- Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
- Ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
- Skýrslugerð og upplýsingamiðlun til íbúa og samstarfsaðila
- Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
- Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
- Reynsla af verkefnastjórn æskileg
- Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu- og byggðamálum mikilvæg
- Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði mikilvæg
- Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Sveiganlegur vinnutími
Auglýsing birt15. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tálknafjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurÖkuréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)




