Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Verkefnastjóri

Rannsóknar og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar leitar að drífandi og skipulagðri manneskju til að stýra fjölbreyttum og spennandi verkefnum innan Orkuveitunnar. Nýr aðili mun ganga til liðs við öflugt teymi Verkefnaþróunar og samstarfs sem hefur það hlutverk að tryggja skilvirka verkefnastýringu sem styður við stefnu Orkuveitunnar.

Nýr verkefnastjóri mun stýra verkefnum sem snúa að endurnýjanlegum orkukostum. Verkefnin eru allt frá frumstigum nýsköpunar- og rannsóknarverkefna til innleiðingar eða framkvæmda þeirra.

Viðkomandi mun koma að þróun á verklagi, bestun á faglegum vinnubrögðum ásamt því að veita sérfræðingum stuðning þegar kemur að verkefnastýringu, forgangsröðun verkefna og tryggja framgang þeirra.

Við leitum að drífandi og lausnarmiðaðri manneskju sem brennur fyrir verkefnastjórnun og fjölbreyttri orkunýtingu, sem vill taka þátt í vegferð okkar að vera aflvakar sjálfbærrar framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þekking og árangursrík reynsla í verkefnastýringu.
  • Frumkvæði, framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Skipulagsfærni og hæfni í framsetningu upplýsinga.
  • Drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
  • Áhugi á orku- og umhverfismálum.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Um okkur

Rannsóknar- og nýsköpunarsvið Orkuveitunnar er öflugt og samhent teymi sem horfir til langs tíma í starfsemi Orkuveitunnar. Teymið tryggir, verndar og treystir á ábyrga og sporlétta nýtingu auðlinda okkar á grunni umfangsmikils rannsóknar- og nýsköpunarstarfs. Sviðið ber m.a. ábyrgð á vöktun og stýringu auðlindanýtingar hjá Veitum og Orku náttúrunnar, að afla nýrra orkukosta og neysluvatnsauðlinda og tekur þátt í alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum og rannsóknasamstarfi. Áhersla er nú á að afla aukinnar grænnar orku bæði til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni með það að markmiði að viðhalda þeim grunni lífsgæða sem við þekkjum í dag.

Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum, Orku náttúrunnar, Veitum, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.

Umsóknarfrestur er til og með 26.apríl 2026

Nánari upplýsingar veitir Pálmar Sigurðsson, forstöðumaður Verkefnaþróunar og samtarfs, í netfanginu: [email protected]

Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar