

Viðskiptastjóri hugvits og tækni
Íslandsstofa leitar að öflugum viðskiptastjóra til að styðja íslensk hugvits- og tæknifyrirtæki í sókn á erlenda markaði. Starfið heyrir undir svið útflutnings og fjárfestinga.
Viðskiptastjóri hugvits og tækni vinnur náið með íslenskum fyrirtækjum að alþjóðlegri sókn þeirra og þróun viðskiptatækifæra á erlendum mörkuðum. Starfið felur meðal annars í sér að greina markaðstækifæri, byggja upp alþjóðleg tengsl, tengja fyrirtæki við samstarfsaðila og fjárfesta og styðja við markaðssetningu þeirra erlendis.
Viðskiptastjóri er fyrsti tengiliður fyrirtækja í sínum greinum við Íslandsstofu og vinnur þvert á þjónustu Íslandsstofu til að tryggja að fyrirtæki fái þann stuðning sem þau þurfa í sinni alþjóðlegu sókn. Starfið felur jafnframt í sér þróun og framkvæmd viðskipta-, kynningar- og markaðsverkefna á Íslandi og erlendis og náið samstarf við fyrirtæki, hagaðila og alþjóðlegt tengslanet Íslandsstofu.
- Veita íslenskum hugvits- og tæknifyrirtækjum þjónustu og stuðning í alþjóðlegri sókn.
- Byggja upp og viðhalda öflugum tengslum við fyrirtæki og aðra hagaðila innanlands og erlendis.
- Greina tækifæri á erlendum mörkuðum og styðja fyrirtæki við val á mörkuðum og markaðsaðgengi.
- Tengja íslensk fyrirtæki við erlenda samstarfsaðila, kaupendur, fjárfesta og önnur mikilvæg tengslanet.
- Fylgjast með þróun og tækifærum í hugvits- og tæknigreinum og byggja upp þekkingu og tengslanet á lykilmörkuðum.
- Þróa og framkvæma viðskipta-, kynningar- og markaðsverkefni í samstarfi við fyrirtæki, samstarfsfólk og hagaðila.
- Stýra undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni lykilviðburða og samstarfsverkefna innan sinna greina.
- Vinna með öðrum teymum og sérfræðingum Íslandsstofu að þjónustu við fyrirtæki, meðal annars á sviði fjármögnunar, markaðssamskipta og útflutningsráðgjafar.
- Fylgja eftir verkefnum, meta árangur og miðla þekkingu um þarfir fyrirtækja, markaði og tækifæri.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Góð þekking á hugvits- og tæknigeiranum og starfsumhverfi nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækja.
- Þekking á alþjóðlegu viðskiptaumhverfi og þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja sókn fyrirtækja á erlenda markaði.
- Reynsla af verkefnastjórnun, útflutningi, viðskiptaþróun eða alþjóðlegu tækniumhverfi er kostur.
- Hæfni til að byggja upp tengsl og vinna með fjölbreyttum fyrirtækjum og samstarfsaðilum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að miðla efni skýrt í ræðu og riti á báðum tungumálum.
- Öflug samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og frumkvæði.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, góð eftirfylgni og metnaður til að ná árangri.
Enska
Íslenska










