Prís
Prís
Prís

Verslunarstjóri - Prís

Prís leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra sem hefur brennandi áhuga á kaupmennsku, rekstri og mannlegum samskiptum. Um er að ræða fullt starf.


Verslunarstjóri ber ábyrgð á heildarrekstri verslunar, daglegri stjórnun og uppbyggingu teymis, ásamt því að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og styrkingu vörumerkisins Prís.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á rekstri verslunar, rekstrarniðurstöðum og daglegri starfsemi
  • Ábyrgð og umsjón með starfsfólki, þjálfun og uppbyggingu teymis
  • Virk þátttaka í kaupmennsku, þar á meðal verðmálum, vöruvali og framboði
  • Stuðla að áframhaldandi þróun og uppbyggingu vörumerkisins Prís
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
  • Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
  • Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum
  • Ábyrgð á birgðahaldi og lágmörkun rýrnunar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í viðskipta- eða verslunarfræðum mikill kostur
  • Marktæk reynsla af stjórnun hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtæki
  • Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og reglusemi
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur til starfsmanna í boði
  • Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
  • Velferðarþjónusta Samkaupa
Auglýsing birt29. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar