

Lyfja Þórshöfn - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í sumar í verslun Lyfju á Þórshöfn. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund og gott viðmót
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Starfið:
Um er að ræða sumarstarf og vinnutíminn er mánudaga-fimmtudaga frá 10:00-15:00.
Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Indriðadóttir, umsjónarmanneskja útibús í síma 464-0609
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska

















