

Lyfjaútibú Hvammstanga - þjónusta og ráðgjöf
Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslu í verslun Lyfju á Hvammstanga. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
- Áfyllingar í verslun
- Afgreiðsla lausasölulyfja
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund og gott viðmót
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Reynslu af verslunarstörfum
Starfið:
Um 40-60% starfshlutfall er að ræða og vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar.
Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 20 ára aldri.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 44 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali í Lyfju Sauðárkróki í síma 543-5700 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska



















