
Fagkaup þjónustudeild
Vöruhús Fagkaupa þjónustar rekstrareiningar félagsins. Fagkaup á og rekur tólf verslunar og þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Akureyri , Reykjanesbæ og Reyðafirði.
Fagkaup veita byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu.
Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg, Hagblikk, Ds lausnir og K.Þorsteinsson og co. Rúmlega 300 starfsmenn vinna hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Lögð er áhersla á góðan starfsanda og góðan aðbúnað starfsfólks. Starfsþróun og tækifæri til vaxtar þar sem fræðsla til starfsfólks er lykilþáttur í að auka þekkingu starfsfólk og efla í daglegum störfum.
Þjónustudeildin er mikilvægur hlekkur í starfsemi Fagkaupa. Þar starfar samheldin flokkur starfsfólks sem leggur metnað í störf sín með krafti og samvinnu að leiðarljósi !
Frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.fagkaup.is

Vöruhús Fagkaupa óskar eftir starfsfólki
Fagkaup rekur verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, Fossberg og DS Lausnir.
Höfuðstöðvar félagsins eru við Klettagarða 25 í Reykjavík en starfseiningar eru víða t.d. á Akureyri, á Selfossi, Grundartanga, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Hafnafirði og Kópavogi
Starf í vöruhúsum er fjölbreytt og lifandi þar sem starfsfólk vinnur saman sem ein heild við að dreifa vörum til eininga félagsins.
Ef þú ert tilbúin/n að veita góða þjónustu og finnst gaman að vinna í teymum þá hvetjum við þig til að sækja um í vöruhúsum Fagkaupa!
Bæði er um að ræða framtíðarstarf fyrir réttan aðila en einnig sumarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörutínsla
- Vörumóttaka
- Áfyllingar
- Tiltekt og önnur tilfallandi störf í vöruhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf skilyrði og lyftarapróf kostur
- Rík þjónustulund
- Öguð og vönduð vinnubrögð
- Stundvísi og góð framkoma
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Hreint sakavottorð
- Snyrtimennska
- 18 ára lágmarksaldur
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Öflugt starfsmannafélag
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Sveigjanlegt starfsumhverfi
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaHandlagniLagerstörfÚtkeyrsla
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

Shipping and Logistics Coordinator
JBT Marel

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Renniverkstæði - Lagerstarf
Embla Medical | Össur

Tímabundið starf í vöruhúsi og akstri
TVG-Zimsen

Við leitum að liðsauka á lager | Warehouse Team Member
JBT Marel

Lagerstarfsmaður
KS

Afgreiðslustjóri
Distica