

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Ertu hress, jákvæð/ur og tilbúin/n að takast á við annasama jólavertíð?
Við hjá Dropp leitum að öflugu starfsfólki í tímabundin störf við útkeyrslu og vöruhúsastörf í nóvember og desember. Á þessum tíma er mikið að gera og því leitum við að einstaklingum sem hafa gott vinnuþol, geta unnið hratt og skipulega undir álagi og leggja metnað í að skila góðri þjónustu.
Boðið er upp á mismunandi vinnutíma:
Starf frá 9. nóvember - 23. desember
Vinnutími alla virka daga, annaðhvort:
-
Kl. 10:40 - 17:00
-
Kl. 12:00 - 17:00
Starf frá 30. nóvember - 23. desember
Vinnutími alla virka daga, annaðhvort:
-
Kl. 07:20 - 15:00
-
Kl. 15:00 - 22:40
Umsækjendur geta valið þann vinnutíma sem hentar þeim í umsóknarferlinu.
Möguleiki er á aukavinnu á kvöldin og um helgar.
-
Útkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu.
-
Flokkun sendinga í vöruhúsi.
-
Önnur tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri.
-
20 ára eða eldri.
-
Gilt bílpróf.
-
Geta til að vinna vel undir álagi og í hröðu vinnuumhverfi.
-
Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð.
-
Stundvísi, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
-
Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
-
Sveigjanleiki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Íslenska
Enska










