Go Leiga
Go Leiga
Go Leiga

Bílstjóri á Bílaflutningabíl

Go Leiga leitar að bílstjóra á bílaflutningabíl

Go Leiga leigir út bílaleigubíla og húsbíla undir merkjum Go Car Rental og Go Campers, auk langtímaleigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi. Við leitum að traustum og skipulögðum bílstjóra sem sér um flutning á bílum flotans milli starfsstöðva, verkstæða, umboða og viðskiptavina.

Starfið hentar þeim sem hafa gaman af akstri, vinna sjálfstætt og vilja vera hluti af samheldnu teymi sem leggur áherslu á þjónustu, áreiðanleika og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur bílaflutningabíls með bíla og húsbíla milli starfsstöðva, verkstæða, umboða og annarra áfangastaða
  • Fermingar og affermingar, þannig að bílar séu tryggilega festir og óskemmdir í flutningi
  • Skáning á ástandi bíla við móttöku og afhendingu, meðal annars með myndum og skýrslum
  • Daglegt eftirlit og umhirða flutningabílsins og tilkynning um bilanir eða viðhaldsþörf
  • Samskipti við flotastjórn, verkstæði og samstarfsaðila um tímasetningar og skipulag ferða
  • Tilfallandi verkefni, til dæmis akstur einstakra bíla þegar þörf krefur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf C, CE, C1E (vörubíll með eftirvagn)
  • Gilt ökumannskort og endurmenntun atvinnubílstjóra
  • Reynsla af akstri stórra ökutækja, reynsla af bílaflutningum er kostur
  • Hreint sakavottorð og góð ökuferilsskrá
  • Skipulögð, nákvæm og ábyrg vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Góð íslensku- eða ensku kunnátta
  • Stundvísi og sveigjanleiki
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og sjálfstætt starf á ferðinni um landið
  • Vel viðhaldinn flutningabíl og góðan búnað
  • Samheldið og jákvætt starfsumhverfi
  • Góða þjálfun og stuðning í upphafi starfs
  • Samkeppnishæf laun samkvæmt samkomulagi
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Fuglavík 43, 230 Reykjanesbær
Skógarhlíð 16, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar