

Starfmaður í afgreiðslu, hlutastarf
Við í Sassy brennum fyrir því að veita persónulega og góða þjónustu og við erum að leita að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í hlutastarf hjá okkur. Við leggjum mikið upp úr góðum mannlegum samskiptum, vönduðum vinnubrögðum og hlýlegri upplifun fyrir hvern og einn viðskiptavin.
Um starfið
Okkur vantar starfsfólk sem getur unnið seinni parta á virkum dögum og 2-4 laugardaga í mánuði frá kl. 11-15. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið felur meðal annars í sér að taka á móti viðskiptavinum í verslun, veita góða ráðgjöf, taka saman netpantanir, taka upp sendingar og sinna almennum verkefnum í verslun. Einnig getur komið til greina að taka þátt í verkefnum tengdum Sassy, bæði í verslun og úti í bæ, svo sem vinnuferðum út á land, mörkuðum, pop-up viðburðum og öðru skemmtilegu. Öll þjálfun og fræðsla verður að sjálfsögðu veitt.
Vinnutími
2-3 virka daga í viku, seinni parta
2-4 laugardaga í mánuði, kl. 11-15
Æskilegt er að viðkomandi sé 23 ára eða eldri.
Við hvetjum áhugasama til að senda inn umsókn sem fyrst, þar sem unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
- Veita framúrskarandi þjónustu
- Aðstoða viðskiptavini í verslun
- Taka saman netpantanir
- Taka upp sendingar
- Halda verslun snyrtilegri
- Almenn þrif og önnur tilfallandi verkefni
- Grunnskólamenntun
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Jákvætt viðmót og stundvísi
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Íslenska










