
Verkefnisstjóri / Verkstjóri í plastsuðu
Við leitum að reynslumiklum og ábyrgum aðila til að leiða teymi plastsuðumanna í framkvæmd verkefna á vegum fyrirtækisins. Viðkomandi mun leiða og samhæfa teymi plastsuðumanna og bera ábyrgð á framvindu, gæðum og öryggi verkefna sem fyrirtækið vinnur að.
Stýra og leiða teymi plastsuðumanna á verkstað
Skipuleggja daglega verkþætti og mannafla
Tryggja framvindu verkefna samkvæmt verkáætlun
Eftirlit með gæðum plastsuðu og frágangi
Umsjón með öryggismálum á verkstað
Samskipti við verkkaupa og eftirlitsaðila á framkvæmdastigi
Skýrslugerð og eftirfylgni með verkframvindu
Reynsla af verkstjórn eða verkefnastjórnun í iðnaði eða mannvirkjagerð
Reynsla af plastsuðu eða sambærilegum tækniverkefnum er skilyrði eða sterkur kostur
Leiðtogahæfni og geta til að stýra teymi
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Góð enskukunnátta er skilyrði
Íslenska
Enska










