Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Verkefnastjóri Virkni og vellíðan

Virkni og vellíðan er verkefni á vegum Kópavogsbæjar sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í sveitarfélaginu. Þátttakendur í verkefninu Virkni og vellíðan fá tækifæri á því að stunda hreyfingu í því félagi sem stendur næst heimili þeirra í Kópavogi. Okkar helsta markmið er það að stuðla að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu bæjarbúa í Kópavogi og stuða jafnframt að farsælli öldrun.

Verkefnastjóri þjálfar, stýrir og heldur utan um verkefnið með áherslu á félagsmiðstöðvar eldra fólks í Kópavogi. Viðkomandi heldur utan um hreyfiframboð í félagsmiðstöðvum Kópavogs og er tengiliður Virkni og vellíðan við þær. Verkefnastjóri starfar náið með öðrum verkefnastjórum Virkni og vellíðan og hjálpar til við ýmis verkefni og viðburði á vegum verkefnisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar við sameiginleg verkefni Virkni og vellíðan um heilsueflingu eldri borgara í Kópavogi
  • Þjálfar þátttakendur í íþróttahúsunum sem og félagsmiðstöðvunum fyrir hádegi alla virka daga
  • Ber ábyrgð á að fylgt sé eftir stefnum Kópavogsbæjar er snúa að lýðheilsu og heilsueflingu íbúa í sveitarfélaginu
  • Ber ábyrgð í samstarfi við aðra verkefnastjóra Virkni og Vellíðan á skipulagi, utanumhaldi og almennri þjálfun í verkefninu
  • Útbýr og skipuleggur þjálfunar- og markaðsáætlun fyrir verkefnið í samráði við deildarstjóra íþróttadeildar og sviðsstjóra menntasviðs
  • Ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd á dagskrá í félagsmiðstöðvum eldri borgara, verkefna og viðburða Virkni og vellíðan
  • Tekur þátt í verkefnum og stuðningi við forvarnir tengt áætlunum bæjarins um lýðheilsu og heilsueflingu íbúa í Kópavogi
  • Tekur þátt í mælingum á þátttakendum Virkni og vellíðan í samráði við þá fagaðila bæði innan og utan sveitarfélagsins sem framkvæma mælingarnar
  • Tekur þátt í fræðslu og þjálfun til íbúa í Kópavogi
  • Ber ábyrgð á valæfingum í Virkni og vellíðan í samstarfi við aðra verkefnastjóra og kemur á heildrænni nálgun hvað varðar hreyfiframboð fyrir aldurshópinn 60 ára og eldri í Kópavogi
  • Situr samráðsfundi með starfsfólki mennta- og velferðasviðs og íþróttafélaga í Kópavogi
  • Vinnur í góðri samvinnu við þær félagsmiðstöðvar sem samkomulag er við um þróun og framkvæmd verkefnisins Virkni og vellíðan
  • Stuðlar að jákvæðri ímynd verkefnisins Virkni og vellíðan fyrir bæjarbúum og/eða öðrum hagsmunaaðilum verkefnisins
  • Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur verkefnastjóra og fellur innan starfssviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði íþrótta- og heilsu- eða lýðheilsufræða
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af þjálfun eldra fólks
  • Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
  • Reynsla og þekking á úrvinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 klukkustunda vinnuvika.

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar