
Verkefnastjóri samfélags- og uppbyggingarverkefna hjá Húnabyggð
Húnabyggð óskar eftir að ráða verkefnastjóra samfélags- og uppbyggingarverkefna í 100% starf með starfsstöð á Blönduósi.
Starfið tilheyrir menningar- og markaðssviði en þverfaglegt samstarf er við starfsfólk sveitarfélagsins, íbúa, fyrirtæki, félagasamtök og aðra samstarfsaðila telst ríkur þáttur.
-
Umsjón með mótun, þróun og eftirfylgni fjölbreyttra verkefna frá hugmyndastigi til framkvæmdar á sviði innviða, almenningsrýma, ferðamannastaða og skipulagsmála.
-
Umsjón með áætlanagerð, tilboðsöflun og samskiptum við hagaðila.
-
Styrkjaumsjón, þ.m.t. styrkjaumsóknir, fjármögnun verkefna og eftirfylgni með styrkjaframkvæmd.
-
Mótun og framkvæmd menningar- og samfélagsverkefna, þ.m.t. verkefna sem tengjast sögu, menningararfi, upplýsingamiðlun, viðburðahaldi, markaðs- og kynningarverkefnum.
-
Frumkvæði að nýjum verkefnum í samráði við stjórnendur og viðeigandi samstarfsaðila.
-
Menntun sem nýtist í starfi og/eða sambærileg starfsreynsla.
-
Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagningu og framkvæmd verkefna.
-
Reynsla af styrkjaumsóknum, áætlanagerð eða opinberri stjórnsýslu.
-
Þekking eða reynsla á sviði skipulags, hönnunar, ferðamála, menningarstarfs eða viðburðastjórnunar.
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni er nauðsynleg.
-
Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að þróa hugmyndir og fylgja þeim eftir.
-
Skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð ásamt hæfni til að halda utan um fjölbreytt verkefni samtímis.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










