

Verkefnastjóri launa og rannsóknaverkefna
Háskólinn á Akureyri leitar að skipulögðum, talnaglöggum og þjónustulunduðum einstaklingi í 80-100% starf verkefnastjóra launa- og rannsóknarverkefna. Starfsstöð er við Háskólann á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Verkefnastjórinn starfar með starfsfólki fjármála- og rekstrarsviðs. Ábyrgð á einstökum verkefnum er skilgreind í samráði við yfirmann samkvæmt verkaskiptingu innan sviðsins.
-
Launavinnsla og kjaramál: Vinnur að launavinnslu og veitir ráðgjöf um launa- og kjaramál.
-
Ráðningar og réttindi: Kemur að gerð ráðningarsamninga, umsýslu réttinda og mati starfa til launa.
-
Rannsóknarverkefni: Vinnur að fjárhagslegri umsýslu og eftirliti með rannsóknaverkefnum og veitir rannsakendum leiðbeiningar.
-
Þróun og samstarf: Tekur þátt í samræmingu verkefna, þróun verklags og kerfa, stefnumótun og úrlausn kjaramála og nefnda- og teymisstarfi.
-
Sinnir öðrum verkefnum á starfssviðinu eftir því sem við á.
-
Háskólanám og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af launavinnslu er æskileg.
-
Reynsla af launa- eða fjárhagskerfi ríkisins eða sambærilegum kerfum, sem og þekking á kjarasamningum er kostur.
-
Talnagleggni og góð færni í Excel og tölulegri úrvinnslu.
-
Þekking á stjórnsýslulögum og starfsemi háskóla er kostur.
-
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
-
Skipulögð og vönduð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík ábyrgðarkennd.
-
Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt, lausnamiðað hugarfar.
-
Gerð er krafa um vammleysi og gott orðspor.











