Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Verkefnastjóri – Kjöt og Fiskur

Innnes leitar að öflugum verkefnastjóra í að leiða uppbyggingu og sölu í kjöt- og fiskvöruflokkum fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem sérfræðiþekking, samskipti við erlenda og innlenda birgja og náin tengsl við lykilviðskiptavini fara saman.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að þróa vöruflokkana áfram, finna ný viðskiptatækifæri og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.

Innnes er ein stærsta og öflugasta heildsala landsins á sviði matvöru og eru vörumerki fyrirtækisins neytendum vel kunnug. Helstu viðskiptavinir Innnes eru stærstu matvöruverslanir landsins, hótel, veitingastaðir, mötuneyti, skólar o.fl. Hjá Innnes starfa yfir 200 manns.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með og uppbyggingu kjöt- og fiskvöruflokka Innnes.
  • Vera leiðandi sérfræðingur innan fyrirtækisins í viðkomandi vöruflokkum og miðla þekkingu til söluteyma.
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við innlenda og erlenda birgja. 
  • Greina markaðstækifæri, þróa vöruframboð og vinna að innleiðingu nýrra vara.
  • Vera í nánu samstarfi við lykilviðskiptavini, skilja þarfir þeirra og þróa lausnir sem mæta væntingum þeirra.
  • Vinna að söluaukningu á kjöti og fiski, samhliða öðrum vörum úr vöruúrvali Innnes.
  • Fylgjast með þróun markaðarins, verðþróun og nýjungum.
  • Taka þátt í áætlanagerð, söluáætlunum og innkaupum í samstarfi við viðeigandi deildir.
  • Fylgja eftir gæðum, þjónustu og úrlausn mála sem upp kunna að koma í tengslum við vörurnar.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem hefur:

  • Góða þekkingu og áhuga á kjöti og/eða fiski.
  • Reynsla úr matvælageiranum, sölu, innkaupum eða vörustjórnun er kostur.
  • Hæfni til að byggja upp og viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
  • Sterka samskiptahæfileika og þjónustulund.
  • Viðskiptavit, frumkvæði og drifkraft til að ná árangri.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góða tölvukunnáttu.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar