
Umsjón með upplýsingatæknimálum Húnabyggðar
Húnabyggð leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í 100% starf til að hafa umsjón með upplýsingatæknimálum sveitarfélagsins . Starfsstöð er á Blönduósi.
Starfið heyrir undir teymisstjóra skrifstofu Húnabyggðar.
-
Forysta við innleiðingu gervigreindarlausna í starfsemi sveitarfélagsins.
-
Eftirfylgni með upplýsingaöryggi, aðgangsstýringum og persónuvernd í samstarfi við viðeigandi ábyrgðaraðila.
-
Samræming upplýsingatæknimála á starfsstöðvum sveitarfélagsins.
-
Umsjón með vefmálum, upplýsingakerfum og þróun veflausna.
-
Eftirlit með virkni og viðhaldi tölvubúnaðar, hugbúnaðar og nettenginga.
-
Dagleg tölvuþjónusta, tæknileg aðstoð og leiðbeiningar til starfsfólks.
-
Samræming aðkeyptrar þjónustu og innkaupa auk eftirfylgni með þjónustusamningum, endurnýjun og skráningu búnaðar og hugbúnaðar.
-
Þátttaka í rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð vegna upplýsingatæknimála.
-
Menntun á sviði upplýsingatækni eða önnur menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi.
-
Þekking á tölvubúnaði, hugbúnaði, netkerfum og almennri tölvuþjónustu.
-
Þekking á Microsoft 365 og öðrum algengum upplýsingakerfum.
-
Reynsla af tæknilegri aðstoð og þjónustu við notendur auk þekkingar á vefumsjón og innleiðingu tæknilausna.
-
Þekking á upplýsingaöryggi, aðgangsstýringum og persónuvernd .
-
Reynsla af samræmingu verkefna og samskiptum við þjónustuaðila.
-
Góð samskipta- og skipulagshæfni ásamt ríkri þjónustulund.
-
Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða verkefnum og finna hagkvæmar lausnir.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










