Bílaleigan Berg - Sixt
Bílaleigan Berg - Sixt
Bílaleigan Berg - Sixt

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu

Viltu bera ábyrgð á því að ferðamenn og Íslendingar finni SIXT á netinu, á Google og í nýjum gervigreindarleitum?

SIXT á Íslandi leitar að drífandi og talnaglöggum aðila sem brennur fyrir stafrænni markaðssetningu. Þú berð ábyrgð á netmarkaðssetningu okkar, bæði fyrir skammtímaleigu til erlendra ferðamanna og langtímaleigu á íslenskum markaði. Þú vinnur náið með framkvæmdastjóra, verðstýringu og markaðsteymi SIXT í höfuðstöðvunum í München, sem styður þig með þekkingu og gögnum.

Starfið hentar vel þeim sem eru snemma á ferlinum eða hafa nokkurra ára reynslu og vilja taka næsta skref. Þú færð ábyrgð frá fyrsta degi og raunveruleg áhrif á vöxt fyrirtækisins.

Helstu verkefni

Leitarvéla- og netauglýsingar (SEA)

  • Setja upp, besta og greina Google Ads-herferðir fyrir lykilmarkaði, með áherslu á Bandaríkin
  • Skipuleggja auglýsingafé eftir markaði og árstíð og færa það þar sem það skilar mestu
  • Vinna leitarorðagreiningu og byggja upp almennar herferðir á helstu mörkuðum

Leitarvélabestun (SEO) og gervigreindarleit

  • Uppfæra og bæta efni á sixt.is og sixtlangtimaleiga.is með áherslu á sýnileika og bókanir
  • Vinna að sýnileika SIXT í gervigreindarleitum og spjallmennum (AI Search Optimization)
  • Besta lendingarsíður og bókunarferli með áherslu á umbreytingu

Herferðir, tilboð og CRM

  • Skipuleggja og keyra herferðir og tilboð, sérstaklega fyrir bandaríska ferðamenn og lágönn
  • Byggja upp póstlista og samskipti við viðskiptavini (CRM)
  • Markaðssetja langtímaleigu og vetrarleigu á íslenskum markaði, til einstaklinga og fyrirtækja

Gögn og eftirfylgni

  • Fylgjast með árangri í GA4, Google Ads og Search Console og skila mánaðarlegu yfirliti
  • Greina gögn og finna ný tækifæri til vaxtar
  • Vera tengiliður við markaðsteymi SIXT í höfuðstöðvum og fylgja eftir tillögum þeirra

Hæfniskröfur

  • Áhugi og grunnþekking á stafrænni markaðssetningu, Google Ads og leitarvélabestun
  • Greiningarhæfni og áhugi á gögnum og hegðun notenda á netinu
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og eignarhald á eigin verkefnum
  • Reynsla úr starfi, starfsnámi eða sérverkefnum sem tengjast markaðssetningu
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti

Það er kostur ef þú

  • Hefur unnið með Google Ads og/eða leitarvélabestun
  • Þekkir GA4, Google Search Console eða sambærileg tól
  • Hefur reynslu af CRM, póstlistum eða markaðssetningu á samfélagsmiðlum
  • Hefur áhuga á því hvernig vörumerki verða sýnileg í gervigreindarleitum
  • Þekkir ferðaþjónustu eða bílaleigumarkaðinn

Við bjóðum

  • Starf hjá alþjóðlegu vörumerki í hröðum vexti, með skýr markmið um vöxt næstu fimm ár
  • Ábyrgð frá fyrsta degi og tækifæri til að móta stafræna ásýnd SIXT á Íslandi
  • Mikla þjálfun og stuðning frá markaðsteymi SIXT í höfuðstöðvum
  • Náið samstarf við íslenska og erlenda samstarfsmenn í litlu og samhentu teymi

Starfshlutfall: 100%
Starfsstöð: Krókháls 9, Reykjavík eða Blikavöllur 5, Reykjanesbæ
Upplýsingar: Guðmundur Orri Sigurðsson, framkvæmdastjóri, [email protected]

Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig þú getur styrkt stafrænan sýnileika SIXT.

Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur10. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 9, 113 Reykjavík
Blikavöllur 5, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar