

Viðskiptastjóri – Novo
Vistor leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í spennandi starf viðskiptastjóra hjá Novo í markaðssetningu og sölu lyfja. Um er að ræða fjölbreytt starf fyrir einstakling með heilbrigðismenntun sem býr yfir góðri færni í að koma fram og miðla þekkingu, meðal annars með fyrirlestrum og fræðsluerindum, ásamt því að efla fagleg tengsl með reglulegum fundum og samtölum.
Viðkomandi verður hluti af öflugu fimm manna teymi á Íslandi og starfar í nánu samstarfi við Novo í Danmörku. Novo er alþjóðlegt heilbrigðisfyrirtæki með yfir hundrað ára sögu og sterka stöðu á sviði meðferða við alvarlegum langvinnum sjúkdómum, meðal annars offitu og sykursýki.
Ef þú hefur metnað til að ná árangri og vilt hafa áhrif gæti þetta verið starfið fyrir þig.
- Byggja upp og efla traust og langtímasambönd við heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila
- Drífa áfram sölu og vöxt vörulína Novo á Íslandi í samræmi við sölumarkmið og áætlanir
- Kynna vörur og miðla faglegri fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks
- Þátttaka á ráðstefnum erlendis og innanlands með hagsmunaaðilum
- Regluleg þjálfun og náið samstarf við Novo
- Þátttaka í markaðs- og áætlunargerð
- Greina og þróa ný tækifæri og taka virkan þátt í viðskiptaþróun
- Háskólamenntun af heilbrigðissviði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu- og markaðsmálum á heilbrigðissviði
- Drifkraftur og metnaður til að ná settum markmiðum
- Reynsla og þekking af störfum innan íslenska heilbrigðiskerfisins er kostur
- Glöggt auga fyrir möguleikum til að einfalda og tæknivæða verklag
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði og skapandi vinnubrögð ásamt framúrskarandi hæfni í teymisvinnu
- Jákvætt viðhorf, fagmennska, aðlögunarhæfni og frumkvæði
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026, boðið verður í viðtöl á meðan umsóknir berast.
Nánari upplýsingar veita Auðunn Rúnar Gissurarson, markaðsstjóri, [email protected] og Birkir Svan Ólafsson, mannauðsstjóri, [email protected]
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum og heilsuvörum á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 50 einstaklingar. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál og klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi.
Íslenska
Enska










