Advania
Advania
Advania

Sérfræðingur í efnisgerð og samskiptum

Við leitum að öflugum og skapandi aðila í markaðsteymið okkar sem hefur brennandi áhuga á textagerð, frásögn og samskiptum.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem þú færð tækifæri til að móta og þróa rödd Advania, miðla þekkingu og reynslu sérfræðinga okkar og segja sögur sem skapa áhuga og byggja upp traust. Þú kemur að þróun og framleiðslu á fjölbreyttu efni, allt frá fréttum, greinum og viðtölum yfir í reynslusögur viðskiptavina, efnisskrif fyrir vef og markaðsherferðir.

Þú verður hluti af öflugu markaðsteymi Advania og vinnur náið með sérfræðingum, stjórnendum, vörueigendum og öðrum teymum innan fyrirtækisins. Hlutverk þitt er að draga fram virði Advania, miðla þekkingu og tryggja áhugaverð og samræmd skilaboð sem styrkja vörumerkið og styðja við markmið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skrifa og ritstýra fjölbreyttu efni, svo sem fréttum, tilkynningum, greinum, viðtölum og kynningarefni

  • Finna og móta áhugaverðar sögur úr starfsemi Advania, miðla þekkingu starfsfólks og þróa og ritstýra efni fyrir Tæknital

  • Þróa og framleiða reynslusögur sem draga fram þann ávinning sem viðskiptavinir hafa af samstarfi sínu við Advania

  • Skrifa auglýsinga- og herferðatexta, efni fyrir markpósta, samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla fyrirtækisins.

  • Skrifa og þróa efni fyrir advania.is með áherslu á notendamiðaða framsetningu og aðlögun efnis að leitarvélum og gervigreind

  • Tryggja samræmdan tón, málfar og skilaboð í öllu efni með tilliti til gæða og vörumerkis

  • Veita sérfræðingum, stjórnendum og öðrum teymum fyrirtækisins ráðgjöf um efnisgerð, miðlun og samskipti

Hæfni

  • Framúrskarandi hæfni í textagerð og ritstjórn

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti

  • Gott auga fyrir áhugaverðum sögum og geta til að gera flókið viðfangsefni aðgengilegt og áhugavert

  • Hugmyndaauðgi og færni í að aðlaga efni, skilaboð og framsetningu eftir ólíkum miðlum, markhópum og tilgangi

  • Góð samskiptahæfni, eiga auðvelt með að afla upplýsinga og vinna með fólki úr ólíkum áttum

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að halda utan um mörg verkefni í einu

  • Áhugi á tækni, nýsköpun og viðskiptum og hæfni til að setja sig inn í fjölbreytt málefni

Menntun og reynsla

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjölmiðlunar, markaðsfræða eða sambærilegu

  • Reynsla af textagerð, ritstjórn, efnisgerð og/eða markaðssamskiptum

  • Reynsla af því að taka viðtöl og vinna upp úr þeim efni er kostur

  • Þekking á leitarvélabestun og stafrænu markaðsstarfi er kostur

Hjá Advania færðu tækifæri til að hafa áhrif á hvernig við segjum sögur, miðlum þekkingu og byggjum upp sterkt vörumerki. Þú munt vinna með öflugu teymi sérfræðinga í markaðsdeild sem hefur mikinn metnað fyrir því sem það gerir og vinnur saman að því að draga fram það virði sem við sköpum fyrir viðskiptavini okkar.

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur2. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar