

Blaðamaður hjá Dagskránni, fréttablaði Suðurlands
Óskum eftir blaðamanni í hlutastarf eða verktakastarf við Dagskrána, fréttablað Suðurlands á Selfossi.
Við leitum að drífandi, jákvæðum, forvitnum og hugmyndaríkum einstaklingi sem er óhræddur við að takast á við margvísleg og spennandi verkefni sem fylgja starfi blaðamanns.
Dagskráin, fréttablað Suðurlands, er rekin af Prentmet Odda á Selfossi. Dagskráin er prentuð í 5200 eintökum og er henni dreift á alla helstu þjónustustaði á Suðurlandi, ásamt því að fara í blaðakassa á Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri og Eyrarbakka. Fréttavefurinn DFS.is er rekinn samhliða blaðinu.
Við hvetjum sérstaklega verktaka með reynslu og gott auga fyrir fréttum til að sækja um.
Starfshlutfall eftir samkomulagi. Sveigjanlegur vinnutími í boði fyrir réttan aðila.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun janúar 2027.
- Frétta- og efnisgerð fyrir Dagskrána og DFS.is
- Dreifing Dagkskrárinnar í verslanir á Selfossi og nærumhverfi
- Annað tilfallandi
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (t.d. fjölmiðlafræði)
- Hafa brennandi áhuga á blaðamannastörfum og gott fréttanef
- Gott vald á ljósmyndun (myndbandagerð er kostur)
- Góð tölvu- og tækniþekking
- Framúrskarandi færni í íslensku og gott vald á ensku
- Góð skipulagshæfni
- Fartölva og farsími (fer eftir starfshlutafalli)
Íslenska
Enska

