

Mannauðsráðgjafi
Við leitum að öflugum mannauðsráðgjafa til liðs við mannauðsteymi Advania. Hlutverkið er fjölbreytt og sameinar náið samstarf og ráðgjöf við stjórnendur og virka þátttöku í fjölbreyttum verkefnum mannauðsteymisins þvert á fyrirtækið.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fólki og rekstri, er sterkur ráðgjafi og getur sett sig inn í ólíkar áskoranir stjórnenda og teyma. Um leið þarftu að hafa gaman af því að láta hlutina gerast, hvort sem það snýr að móttöku nýs starfsfólks, mannauðsgögnum, ferlum, viðburðum eða öðrum verkefnum sem bæta upplifun starfsfólks og styðja við starfsemina.
Hvað munt þú gera?
Sem mannauðsráðgjafi verður þú samstarfsaðili stjórnenda í fjölbreyttum mannauðsmálum og styður þá við að leiða og þróa fólk og teymi.
Meðal verkefna eru að:
-
Veita stjórnendum ráðgjöf og stuðning í fjölbreyttum mannauðs- og starfsmannamálum, meðal annars varðandi frammistöðu, endurgjöf, fjarveru og önnur viðfangsefni stjórnendahlutverksins.
-
Styðja við breytingar, þróun teyma og önnur verkefni
-
Styðja við þróun stjórnenda og efla þá í hlutverki sínu
-
Vinna með niðurstöður starfsánægju- og mannauðsmælinga og styðja stjórnendur við að breyta innsýn í raunverulegar aðgerðir
-
Taka þátt í móttöku nýs starfsfólks, innri samskiptum og öðrum lykilþáttum starfsferilsins
-
Þróa og bæta ferla, verklag og verkfæri í mannauðsmálum
-
Koma að skipulagningu og framkvæmd viðburða og annarra sameiginlegra verkefna mannauðsteymisins.
-
Koma að fræðslu, þróunarverkefnum og öðrum verkefnum sem byggja upp hæfni innan fyrirtækisins
Við erum lítið teymi með breitt hlutverk og leggjum áherslu á að vinna vel saman og deila þekkingu. Við skiptum með okkur ábyrgðinni og hjálpumst að við að koma hlutunum yfir línuna.
Hver ert þú?
Við erum að leita að einstaklingi sem hefur breiða reynslu af mannauðsmálum og líður vel í ráðgjafarhlutverki gagnvart stjórnendum.
Við teljum að þú eigir sérstaklega vel heima hjá okkur ef þú:
-
Hefur nokkurra ára reynslu af mannauðsmálum og ráðgjöf við stjórnendur
-
Hefur góða þekkingu á helstu þáttum mannauðsmála og íslensku starfsumhverfi
-
Hefur áhuga á rekstri og átt auðvelt með að setja þig inn í markmið, áskoranir og þarfir ólíkra hluta fyrirtækisins
-
Ert sterk/ur í samskiptum, byggir auðveldlega upp traust og átt gott með að koma sjónarmiðum þínum á framfæri
-
Hefur yfirvegaða og faglega nálgun, ert óhrædd/ur við að spyrja krefjandi spurninga og takast á við viðkvæm mál
-
Vinnur skipulega, tekur ábyrgð á verkefnum og fylgir þeim vel eftir
-
Sérð tækifæri til að gera hlutina einfaldari og betri
-
Getur unnið sjálfstætt en nýtur þess jafnframt að vera hluti af teymi þar sem fólk vinnur saman að sameiginlegum markmiðum.
Við gerum ráð fyrir háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði mannauðsmála, viðskiptafræði, sálfræði eða sambærilegu. Við horfum þó ekki síður til reynslu, hæfni og þess hvernig þú nálgast fólk, verkefni og viðfangsefni.
Af hverju Advania?
Hjá Advania færðu tækifæri til að vinna náið með stjórnendum og hafa raunveruleg áhrif á þróun mannauðsmála í stóru og fjölbreyttu tæknifyrirtæki. Við viljum að mannauðsteymið sé öflugur samstarfsaðili stjórnenda, skilji reksturinn og stuðli að því að fólk, teymi og fyrirtækið nái árangri. Jafnframt viljum við skapa starfsumhverfi þar sem fólki líður vel, fær að njóta styrkleika sinna og hefur tækifæri til að þróast og ná árangri.
Íslenska
Enska

