
Samkaup
Samkaup er framsækið verslunarfyrirtæki sem er leiðandi í viðskiptaháttum, vörugæðum og þjónustu. Samkaup hf reka yfir 60 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.
Samkaup leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður, með öfluga framlínu þar sem gildi fyrirtækisins, Kaupmennska, Áræðni, Sveigjanleiki og Samvinna eru leiðarljós í öllu starfi.
Samkaup er rekstrarfélag á neytendavörumarkaði með virkt hlutverk í samfélaginu. Hlutverk Samkaupa er að tryggja neytendum vörugæði, góða þjónustu og fjölbreytt vöruval á eins hagstæðu verði og völ er á og með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Samkaup skal vera þekkt fyrir að fara alla leið í þágu vörugæða og þjónustu ásamt því að vera í fararbroddi í nýsköpun sem skapar tækifæri fyrir viðskiptavini, samfélag og starfsfólk.

Grafískur hönnuður
Vilt þú taka þátt í spennandi breytingum? Samkaup leitar að grafískum hönnuði sem brennur fyrir markaðsmálum.
Þú vinnur þétt með markaðsstjórum að fjölbreyttum verkefnum þvert á vörumerki Samkaupa: Nettó, Prís, Kjörbúðina, Krambúðina, SPAR, 10-11 og Heimkaup. Fyrirtækið stendur á spennandi tímamótum í þróun á ásýnd og upplifun vörumerkjanna og þú færð að móta það með okkur.
Ef þú ert kraftmikil manneskja með frumkvæði, skoðanir á markaðsmálum og vilt starfa í lifandi og hröðu samkeppnisumhverfi þá hvetjum við þig til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og framleiðsla markaðsefnis fyrir helstu miðla: samfélagsmiðla, útimiðla, vefmiðla, bæklinga, skjái, prentmiðla o.s.frv.
- Ásýnd og upplifun í verslunum: skilti, hillumerkingar og aðrar upplýsingamerkingar, frá hugmynd í prentskjal
- Umsjón með sniðmátum og útliti hvers vörumerkis í Figma
- Þróa sniðmát og ferla sem sjálfvirknivæða framleiðslu á reglubundnu efni fyrir öll vörumerkin
- Samskipti þvert á deildir og við utanaðkomandi samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla á sviði grafískrar hönnunar, helst í retail eða hröðu umhverfi
- Mjög góð færni í Figma og Adobe Creative Suite
- Reynsla af vinnslu og frágangi prentskjala
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skapandi hugsun
- Áhugi á sjálfvirkni og nýjungum í hönnunarverkfærum, og forvitni um að prófa nýjar leiðir
- Brennandi áhugi á markaðsmálum
- Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af hreyfigrafík, verkefnastýringu og/eða textaskrifum
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa og tengdra félaga
- Velferðarþjónusta
- Heilsustyrkur
Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur20. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmára 1
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




