

Kerfisstjóri í rekstrarþjónustu
Við leitum að öflugum kerfisstjóra í rekstrarþjónustu Origo sem vill taka þátt í að reka, þróa og bæta upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina okkar. Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hefur metnað fyrir því að tryggja öryggi, stöðugleika og góðan rekstur upplýsingatæknikerfa. Ef þú hefur djúpan skilning á tækni, hefur gaman af því að finna rót vandamála, leysa þau og gera hlutina betur næst gæti þetta verið tækifæri fyrir þig!
-
Daglegur rekstur, vöktun og viðhald upplýsingatækniumhverfa viðskiptavina.
-
Rekstur og umsýsla Microsoft og Linux - umhverfa.
-
Umsýsla Active Directory, Microsoft Entra ID og Microsoft 365.
-
Uppsetning, rekstur og uppfærsla netþjóna og tengdra innviða.
-
Umsýsla með afritun, uppfærslur og aðra þætti sem tryggja öruggan og stöðugan rekstur.
-
Þátttaka í breytingum, innleiðingum og umbótaverkefnum hjá viðskiptavinum.
-
Skráning lausna og uppbygging rekstrarskjölunar og þekkingar.
-
Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini og samstarfsfólk.
Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt en viljum hinsvegar gjarna sjá:
-
Reynslu af kerfisstjórnun eða rekstri upplýsingatæknikerfa
-
Góða þekkingu á Microsoft-umhverfi: Windows Server, Active Directory, Entra ID og Microsoft 365
-
Áhuga og skilning á upplýsingaöryggi
-
Góða íslensku- og enskukunnáttu
-
Þjónustulund, gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
Það er síðan stór plús ef þú hefur þar að auki:
-
Þekkingu á Azure og skýjaumhverfum
-
Þekkingu á Linux stýrikerfum og tengdum hugbúnaði
-
Þekkingu á sýndarumhverfum, afritunarlausnum og vöktun
-
Microsoft- eða aðrar fagvottani
-
Framúrskarandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.
-
Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
-
Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.
-
Stöðug þróun þekkingar.
-
Veglegur velferðarpakki.
-
Stuðningur í kringum barneignir
-
Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.
-
Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.
-
Samgöngustyrkur.
-
Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.
-
Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.
-
Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.
Íslenska
Enska









