Ofar ehf
Ofar ehf
Ofar ehf

Innviðir framtíðarinnar - Tæknistörf í gagnaveri á Blönduósi.

Viltu vera hluti af innviðum framtíðarinnar?

Við hjá Ofar leitum að framsæknum og áreiðanlegum einstaklingum til að ganga til liðs við innviðateymi fyrirtækisins sem sinnir rekstri, eftirliti og þjónustu við gagnaver við Blönduós.

Þú þarft ekki að vera sérfræðingur eða hafa reynslu af gagnaverum. Við veitum ítarlega þjálfun og stuðning í starfi. Það sem skiptir mestu máli er tæknilegur áhugi, vandvirkni og vilji til að læra.

Þetta er spennandi tækifæri til að öðlast nýja þekkingu og þróast í starfi með öflugu teymi í mikilvægum og hraðvaxandi geira.

Um er að ræða vaktavinnu í 24/7 rekstri, allt árið um kring, samkvæmt skilgreindu vaktafyrirkomulagi. Starfsmenn fá ítarlega þjálfun í upphafi og áframhaldandi stuðning í starfi.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir áhugasama aðila sem vilja starfa í mikilvægum og hraðvaxandi geira og þróast faglega með öflugu teymi.

Starfsstöð er í:

  • Gagnaveri sem staðsett er 2km frá Blönduósi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegt eftirlit með búnaði, innviðum og umhverfi gagnavera

  • Reglubundið eftirlit og umhverfisvöktun

  • Öflun viðeigandi vottana og/eða réttinda til að starfrækja búnað

  • Meðhöndlun, greining og eftirfylgni atvika, tilkynninga og þjónustubeiðna

  • Framkvæmd staðlaðra verkferla og öryggisúttekta

  • Samskipti og samvinna við birgja, þjónustuaðila og samstarfsaðila innanlands og erlendis

  • Almenn tækniaðstoð og prófanir eftir þörfum í rekstri gagnavera

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Eru áreiðanlegir, vandvirkir og sýna frumkvæði.

  • Geta unnið sjálfstætt og fylgt skýrum verkferlum.

  • Eiga auðvelt með samskipti og teymisvinnu.

  • Eru með bílpróf.

  • Menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur.

  • Grunnþekking og/eða reynsla af gagnaverum, tæknilegum innviðum, net- eða rafmagnsbúnaði er kostur.

Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, IBM, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í innviðalausnum, hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.

Umsóknarfrestur er til og með 3. desember nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Nánari upplýsingar veitir Ísleifur Örn Guðmundson, Forstöðumaður Viðskiptaþróunar [email protected]

Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur3. desember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar