Samherji fiskeldi ehf.
Samherji fiskeldi ehf.

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum

Samherji Fiskeldi óskar eftir að ráða sérfræðing í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) til að ganga til liðs við upplýsingatæknisvið fyrirtækisins og sinna þjónustu og þróun SCADA kerfa. Samherji Fiskeldi rekur landeldisstöðvar og fiskvinnslur víða um land og er að byggja nýjan Eldisgarð á Reykjanesi. Stýrikerfin eru hjarta starfseminnar. Þau vakta og stýra vatnsgæðum, súrefni, dælum, fóðrun og vinnslulínum og rekstur þeirra hefur bein áhrif á velferð fisksins og afköst framleiðslunnar.

Framundan er mikil uppbyging og mun viðkomandi taka virkan þátt í að byggja upp framtíðarumhverfi stýrikerfa fyrirtækisins, bæði í núverandi stöðvum og við uppbyggingu Eldisgarðs frá grunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur, viðhald og þróun SCADA kerfa í landeldisstöðvum og fiskvinnslum fyrirtækisins, sem byggja á AVEVA System Platform
  • Innleiðing nýrra kerfa og stækkanir á núverandi uppsetningu
  • Þátttaka í hönnun og uppbyggingu stýrikerfa Eldisgarðs á Reykjanesi, sem byggja á Ignition SCADA
  • Samstarf við og eftirfylgni með verkfræðistofum og þjónustuaðilum, s.s. rýni á hönnun, prófanir og úttektir
  • Þátttaka í þróun samræmdra staðla og verklags fyrir stýrikerfi á öllum starfsstöðvum
  • Samþætting SCADA kerfa við önnur upplýsingakerfi, svo sem gagnasöfnun, sögugrunna og skýrslugerð
  • Öryggi og rekstraröryggi stýrikerfa (OT öryggi) í samvinnu við upplýsingatæknisvið
  • Bilanagreining og úrlausn vandamála í samvinnu við starfsfólk á stöðvunum
  • Skjölun á kerfum, breytingum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af hönnun, forritun eða rekstri SCADA kerfa er skilyrði
  • Reynsla af AVEVA System Platform og/eða Ignition frá Inductive Automation
  • Þekking á iðnstýringum (PLC) og samskiptastöðlum, svo sem OPC UA, Modbus og Ethernet/IP
  • Þekking á netkerfum í iðnaðarumhverfi
  • Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða verkefnum og taka ábyrgð
  • Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við ráðgjafa, verktaka og notendur
  • Reynsla af stýrikerfum í fiskeldi, matvælaiðnaði, veitum eða sambærilegum vinnsluiðnaði er kostur

Við bjóðum upp á:

  • Lykilhlutverk í fyrirtæki í örum vexti
  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu stýrikerfa nýs Eldisgarðs frá grunni
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni á mörgum starfsstöðvum
  • Tækifæri til faglegrar þróunar
  • Gott starfsumhverfi og samheldinn hóp

Starfsstöð er í Kópavogi (Smáralind), með reglulegum ferðum á starfsstöðvar fyrirtækisins

Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur13. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar