

Verkefnastjóri á skrifstofu námsbrauta í geisla- og lífeindafræði
Laust er til umsóknar 75% starf verkefnastjóra á skrifstofu námsbrauta í geisla- og lífeindafræði innan Læknadeildar Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Um er að ræða tímabundna afleysingu til eins árs.
Verkefnastjóri gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi námsbrautanna og er í nánu samstarfi við námsbrautarstjóra, kennara, nemendur og annað stjórnsýslustarfsfólk. Starfið veitir góða innsýn í háskólaumhverfi og hentar vel einstaklingi sem hefur ánægju af skipulagi, samskiptum og þjónustu.
-
Dagleg verkefni í tengslum við nám og kennslu, svo sem upplýsingagjöf, afgreiðsla erinda, skjalavarsla og almenn þjónusta við nemendur og kennara
-
Umsjón með kennsluáætlunum og uppgjöri kennslu í samstarfi við fjármálateymi HVS
-
Vinna við stundaskrár, stofubókanir og prófahald
-
Kynningarmál og viðburðir á vegum námsbrautanna
-
Undirbúningur brautskráninga
-
Undirbúningur funda og eftirfylgni mála
-
Skipulagning og umsýsla verklegrar þjálfunar nemenda
-
Eftirfylgni með upplýsingum í kennsluskrá
-
Bakkalárpróf sem nýtist í starfi
-
Gott vald á upplýsingatækni og áhugi á að tileinka sér nýjungar á því sviði, meðal annars á sviði gervigreindar
-
Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund
-
Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
-
Góð færni í íslensku og ensku
-
Reynsla af sambærilegum verkefnum í háskólaumhverfi er æskileg
Íslenska
Enska










