

Verkefnastjóri á rannsóknastofum Lífvísindasviðs Læknadeildar
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra rannsókna- og verkkennslustofa Lífvísindasviðs Læknadeildar Háskóla Íslands.
Á Lífvísindasviði fara fram kennsla og rannsóknir í lífvísindum. Hluti kennslunnar er verklegur og fer fram í sér útbúnum verkkennslustofum.
Verkefnastjórinn vinnur í nánu samstarfi við kennara, nemendur, stjórnendur og samstarfsfólk sem sinnir sambærilegum verkefnum innan sviðs og deildar.
-
Umsjón með undirbúningi, uppsetningu, framkvæmd og frágangi eftir verklegar æfingar í samstarfi við kennara.
-
Pöntun og utanumhald efna, tækja, sýna og annarra aðfanga fyrir verklega kennslu.
-
Umsjón með rannsókna- og verkkennslustofum, búnaði, aðstöðu og sýnasafni.
-
Eftirfylgni með öryggismálum í rannsókna- og verkkennslustofum í samstarfi við stjórnendur og öryggisnefnd Heilbrigðisvísindasviðs.
-
Kennsla í verklegum æfingum og þátttaka í þróun, skipulagi og framkvæmd verklegrar kennslu.
-
Samstarf við kennara um dýrahald vegna verklegrar kennslu og rannsókna.
-
Vinna við samhæfingu verklags, innkaupa og reksturs í samstarfi við starfsfólk Læknadeildar.
-
Bakkalárpróf á sviði lífvísinda, heilbrigðisvísinda eða skyldra greina.
-
Reynsla af störfum á rannsóknarstofu eða verklegri kennslu er æskileg.
-
Þekking á öryggismálum rannsókna- og kennslustofa er kostur.
-
Góð skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
-
Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð nálgun.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
-
Færni á sviði upplýsingatækni í kennslu, þ.m.t. geta til að tileinka sér og nýta gervigreind, sýndarveruleika og sérhæfðan hugbúnað við undibúning og framkvæmd verklegrar kennslu.
Íslenska
Enska