Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

YLJA restaurant at Laugarás Lagoon Uppvask / Kitchen porter

Uppvask / Kitchen porter

(English below)

Viltu vera hluti af samhentu eldhústeymi þar sem gleði, famennska og góð orka ráða ríkjum? Við leitum að drífandi og ábyrgum einstaklingum í uppvask og eldhúsaðstoð á veitingastaðnum Ylju, sem opnar á næstunni við Laugarás Lagoon. Starfið er mikilvægur burðarás í daglegri starfsemi þar sem þú styður við flæði, hreinlæti og jákvæðan starfsanda. Þú vinnur náið með kokkum og starfsfólki eldhússins þar sem allir leggja sitt af mörkum til að halda vinnuumhverfi hreinu og skipulögðu – og stuðla að jákvæðri orku í eldhúsinu. Þitt framlag hefur bein áhrif á liðsheild og gæði þjónustunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þrif og uppvask með áherslu á faglegt verklag og hreinlæti
  • Aðstoð við eldhússtörf og undirbúning eftir þörfum
  • Tryggja snyrtilegt og öruggt umhverfi í eldhúsi 
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingum sem...

  • Eru jákvæðir, skipulagðir og vinnusamir
  • Geta unnið sjálfstætt og innan teymis
  • Sýna frumkvæði og tilbúin að læra og vaxa í starfi
  • Hafa áhuga á matarmenningu og vellíðan á vinnustað
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á

  • Einstakt tækifæri til að taka þátt í nýju og skapandi verkefni undir stjórn Gísla Matts
  • Samstarf við kraftmikið og fjölbreytt teymi
  • Líflegt starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á matarást, virðingu og gleði
  • Möguleika á húsnæði í nágrenni við vinnustað
  • Aðgang að þjónustu Laugarás Lagoon
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur16. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skálholtsvegur, 806 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.Uppvask
Starfsgreinar
Starfsmerkingar