Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Þjónar og barþjónar / Waiters and bartenders - Ylja Restaurant - Laugarás Lagoon

Við leitum að reynslumiklum, ábyrgum og jákvæðum þjónum og barþjónum til að slást í hópinn á nýopnuðum og einstökum áfangastað í Laugarási, þar sem náttúra, vellíðan og dýrmæt upplifun mætast á einum stað.

Ylja er hlýlegur og hráefnisdrifinn veitingastaður sem leggur áherslu á hráefni úr nærumhverfi og hreinan mat. Veitingastaðurinn er leiddur af Gísla Matt

Með jákvæðu viðmóti og fagmennsku stuðlar þú að því að hver gestur upplifi einstaka og

heildstæða þjónustu frá upphafi til enda.

Starfið hentar vel fyrir þá sem hafa reynslu í þjónustu eða barvinnu og vilja vinna á lifandi og faglegum vinnustað í einstöku umhverfi.

Unnið er á vöktum. Við leitum að starfsfólki í:

• Fullt starf samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi

• Hlutastarf aðra hvora helgi (fös.–sun.)

• Sumarstörf

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta gesti af hlýju og fagmennsku 

  • Þekkja matseðil, drykkjarúrval og geta leiðbeint gestum 

  • Vinna í nánu samstarfi við eldhús og bar til að tryggja góða þjónustu 

  • Sýna góða samskiptahæfni og vinna vel með öðru starfsfólki 

  • Útbúa og bera fram drykki af fagmennsku (fyrir barþjóna) 

  • Viðhalda snyrtilegu og öruggu vinnuumhverfi 

  • Tryggja að upplifun gesta sé jákvæð og eftirminnileg 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur reynslu af þjónustu á veitingastöðum eða barvinnu 
  • Framúrskarandi þjónustulund, hlýleg og fagleg framkoma og kemur vel fyrir
  • Er jákvæð/ur, snyrtileg/ur og áreiðanleg/ur í starfi 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál eru kostur)
  • Getur unnið vel í lifandi, hröðu og síbreytilegu umhverfi
  • Aldurstakmarkið er 20 ára
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
  • Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
  • Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
  • Aðgangur að starfsmannahúsnæði er í boði.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skálholtsvegi 1, Laugarási
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar