Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Gestgjafi þjónustu og upplifunar/Guest Experience Host

Vertu hluti af einstökum áfangastað í Laugarási

Við leitum að drífandi, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum í hlutverk gestgjafa þjónustu og upplifunar á nýopnuðum og einstökum áfangastað í Laugarási, þar sem náttúra, vellíðan og dýrmæt upplifun mætast á einum stað.

Starfið er fjölbreytt og lifandi, þar sem þú sinnir þjónustu á mismunandi starfstöðvum innan Laugarás Lagoon. Þú tekur á móti gestum í baðlóninu, þjónustar á veitingastaðnum YLJU og á börum lónsins og tryggir þannig samfellu í upplifun þeirra.

Með jákvæðu viðmóti og fagmennsku stuðlar þú að því að hver gestur upplifi einstaka og heildstæða þjónustu frá upphafi til enda.

Sem gestgjafi þjónustu og upplifunar tekur þú virkan þátt í að móta stemningu og þjónustumenningu staðarins og ert hluti af metnaðarfullu teymi sem leggur sig fram við að skapa eftirminnilega upplifun fyrir hvern og einn gest.

Unnið er á vöktum. Við leitum að starfsfólki í:

  • Fullt starf samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi

  • Hlutastarf aðra hvora helgi (fös.–sun.)

  • Sumarstörf

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta gesti af hlýju og fagmennsku hvort sem er við komu á baðstaðinn, á lónsbörum eða á Ylju veitingastað. 

  • Veita gestum upplýsingar eins og þarf hverju sinni 

  • Leggja sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu og persónulega upplifun 

  • Styðja við samstarfsfólk eftir þörfum 

  • Leysa úr fyrirspurnum, koma til móts við óskir og bregðast fljótt við vandamálum 

  • Halda utan um gæðaviðmið og skrá athugasemdir eða ábendingar frá gestum 

  • Tryggja að umhverfið sé aðlaðandi, hreint og vel skipulagt 

  • Starfa eftir gildandi verklagsreglum, öryggiskröfum og þjónustustefnu 

Menntunar- og hæfniskröfur

•        Reynsla úr þjónustugeiranum (t.d. sem þjónn, í móttöku, á baðstað eða hóteli) er kostur

•        Reynsla af vinnu með bókunar- eða sölukerfum er kostur

•        Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál eru kostur

•        Framúrskarandi þjónustulund, hlýleg og fagleg framkoma og kemur vel fyrir

•        Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi

•        Vilji til að læra og þróast í starfi

•        Getur unnið vel í lifandi, hröðu og síbreytilegu umhverfi

•        Aldur yfir 20 ára er kostur

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi 

  • Tækifæri til starfsþróunar 

  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar 

  • Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum

  • Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon

  • Aðgangur að starfsmannahúsnæði er í boði
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur27. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skálholtsvegi 1, Laugarási
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar