Storm hótelrekstur ehf.
Storm hótelrekstur ehf.
Storm hótelrekstur ehf.

Gestamóttökustjóri á Storm Hótel

Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum verkefnum í gestamóttöku ásamt daglegum rekstri í samvinnu við hótelstjóra.

Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.

Hótel Storm er staðsett í Þórunnartúni 4 í Reykjavík og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er fallegt 93ja herbergja hótel með morgunverðarsal og bar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
  • Þjónustu- og gæðaeftirlit
  • Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
  • Yfirumsjón á bar
  • Skipulagning á komu gesta
  • Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
  • Reynsla á barrekstri er kostur
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þórunnartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar