Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umsjón í eldhúsi

Í Samfélagshúsinu Aflagranda 40 er laus staða umsjónarmanns eldhúss. Samfélagshúsið er í hjarta Vesturbæjar og er það sótt af fólki á öllum aldri. Við leitum að traustum og ábyrgum einstakling sem hefur gaman af að vinna með fólki þar sem mikið líf er í Samfélagshúsinu okkar. Við leggjum ríka áherslu á teymisvinnu á okkar vinnustað og viljum við að allir geti látið krafta sína skína og kemur teymisvinnan þar sterk inn. Um er að ræða 100% starf og er vinnutími frá 8 til 16 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast matreiðslu og framreiðslu í hádegi og kaffitíma.
  • Sér um öll innkaup á matvöru og hreinlætisvörum.
  • Annast almenn þrif á eldhúsi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Efnisþekking á matvælum og ræstivörum
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reglusemi
  • Hreint sakavottorð við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á stigi A2-B2
Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur8. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar