

Matráður óskast
Laust er til umsóknar starf matráðs í skólamötuneyti við Grunnskóla Borgarfjarðar og leikskólann Hnoðraból, Kleppjárnsreykjum. Í grunnskólanum eru um 115 nemendur í 1.- 10. bekk, um 30 nemendur í leikskólanum Hnoðraból og um 45 starfsmenn í heild
Matráður vinnur í teymi með yfirmatráði og aðstoðarmatráði. Hann hefur yfirumsjón, í samráði við yfirmann mötuneytis, með matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann, annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum og hefur umsjón með þrifum, þvottahúsi og þvottum.
Um 80% starf er að ræða. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 7. ágúst næstkomandi.
-
Matráður ber ábyrgð á matseld, innkaupum, stjórnun, skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu í samvinnu við sinn yfirmann.
-
Matráður sé um mat fyrir börn með fæðuofnæmi eða óþol.
-
Gætir fyllsta hreinlætis og snyrtimennsku við matargerð og önnur störf í eldhúsi.
-
Sér um kaffistofu starfsfólks; undirbúning og frágang í samvinnu við aðstoðar matráð
-
Þvær þvott og gengur frá ásamt aðstoðarmatráði
-
Sér um léttar veitingar á fundum, skipulagsdögum o.fl.
-
Matartæknir eða menntun sem nýtist í starfi
-
Þekking og reynsla af sambærilegu starfi
-
Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Góð íslenskukunnátta
-
Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
-
Stundvísi og áreiðanleiki.





















