Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúar - Grunnskólinn í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2025-2026.

Við leitum að öflugum stuðningsfulltrúum til starfa næsta skólaár. Stuðningsfulltrúi fylgir bekk eða sínum skjólstæðingi eftir því sem við á. Um er að ræða 70-80% starfshlutfall á launadreifingu. Ráðið verður í stöðuna frá og með 20. ágúst.

Í Grunnskólanum í Borgarnesi eru um 330 nemendur í 1.–10. bekk og um 60 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur samhentur starfsmannahópur með það að leiðarljósi að gera gott skólastarf betra. Skólinn er teymiskennsluskóli og vinnur eftir áherslum Uppeldis til ábyrgðar.

Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta 
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki 
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
  • Afsláttur hjá Símanum
  • Afsláttur á bókasafninu
Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur4. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar