Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Verkefnastjóri í skólaþjónustu

Borgarbyggð óskar eftir verkefnastjóra í skólaþjónustu. Um tímabundna stöðu til eins árs er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Verkefnastjóri í skólaþjónustu sinnir ráðgjöf til skóla sem felur meðal annars í sér, ráðgjöf í sérkennslu, ráðgjöf til kennara og stjórnenda, ráðgjöf til foreldra og einnig stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf í fræðslumálum hjá sveitarfélaginu. Áhersla er lögð á að verkefnastjórin hafi viðtæka þekkingu á málefnum leikskóla.

Hluti af starfinu felur einnig í sér málstjórn á 2. stigi í farsæld. Málstjóri sér um að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu.

Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025. Kostur er ef starfsmaður geti hafið störf fyrr.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf til stoðþjónustuaðila í leik- og grunnskólum
  • Ráðgjöf til skólastjórnenda í leik- og grunnskólum
  • Málstjórn á 2. stigi í farsæld
  • Umsjón og ráðgjöf með skólaþjónustu og skipulag á fyrirkomulagi verktaka í skólaþjónustu
  • Þátttaka í nemendavernd og lausnateymi leik- og grunnskóla
  • Vinnur með skólastefnu Borgarbyggðar
  • Vinnur í teymi með starfsmönnum skólaþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi
  • Víðtæk reynsla af stoðþjónustu í leikskólum
  • Færni, þekking og reynsla af inngildandi starfsháttum í skólum
  • Hæfni og reynsla til að veita faglega forystu
  • Reynsla af þróunarstarfi og stefnumótun í skólamálum
  • Mikil áhersla á færni og sveigjanleika í samskiptum
  • Góð íslensku- og tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími  
  • Heilsustyrkur til starfsmanna  
  • Handleiðsla
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar