Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Matráður óskast

Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi óskar eftir að ráða matráð sem getur hafið störf í ágúst. Möguleiki er á að starfið sé 80% til 100% staða eftir nánara samkomulagi.
Garðasel er sjö deilda skóli og eru nemendur um 160 talsins á aldrinum 1 til 6 ára. Leikskólinn er í nýju húsnæði þar sem aðstaða í eldhúsi og tækjabúnaður er til fyrirmyndar. Allur matur er eldaður frá grunni og áhersla lögð á hollan og góðan mat sem tekur mið af áherslum samtaka Heilsuleikskóla og Akraneskaupstaðar er varðar næringu og hollustu.

Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að starfsmanni sem hefur áhuga á matargerð, er duglegur og tilbúinn að vinna með öflugum starfsmannahópi af áhuga, jákvæðni og gleði.

Einkunnarorð skólans eru: Lífið er leikur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða daglegur rekstur á mötuneyti fyrir nemendur og starfsmenn Garðasels og tilfallandi verkefni á tillidögum skólans.

  • Matráður sér um matseld, innkaup og skipulag matseðla.
  • Matráður sér um mat fyrir börn með fæðuofnæmi eða óþol.
  • Matráður ásamt aðstoðarfólki sér um uppvask, þrif í elhúsi, þvottahús leikskólans og kaffistofu starfsmanna.
  • Matráður hefur umsjón með störfum aðstoðarfólks í eldhúsi en í eldhúsi skólans eru samtals um 2,5 stöðugildi.
  • Matráður er í samstarfi við stjórnendur skólans varðandi hollusthætti og almennan rekstur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matartæknir eða þekking og reynsla af sambærilegu starfi
  • Kostur að hafa setið námskeið um meðhöndlun matvæla
  • Þekking á næringu og hollustu matvæla
  • Þekking á fæðuofnæmi og fæðuóþoli
  • Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og metnaður í starfi
  • Hreinlæti og snyrtimennska er skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • 18 ára og eldri
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt19. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Asparskógar 25
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.MatreiðsluiðnPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Tóbakslaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar