
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Verkefnastjóri velferðarþjónustu – Þátttakandi í þróun og árangri
Vilt þú hafa áhrif á samfélagið og leiða verkefni sem skipta máli?
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og framsýnum verkefnastjóra sem býr yfir sveigjanleika og aðlögunarhæfni til að leiða fjölbreytt þróunarverkefni með skýra sýn á árangur og umbætur í velferðarþjónustu borgarinnar.
Um fullt starf er að ræða og heyrir starfið undir ráðgjafarþjónustu á skrifstofu velferðarsviðs. Skrifstofa velferðarsviðs er Regnbogavottaður vinnustaður. Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn hvatt til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða þróun og innleiðingu verkefna á sviði félags- og velferðarþjónustu – verkefnin eru fjölbreytt og breytileg eftir þörfum samfélagsins hverju sinni.
- Móta og fylgja eftir árangursmælingum, umbótaverkefnum og nýjungum í þjónustu.
- Taka virkan þátt í teymisvinnu þvert á svið og stofnanir með áherslu á samþættingu og samráð.
- Tryggja að rödd notenda og hagsmunaaðila heyrist í allri stefnumótun og framkvæmd verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi sem félagsráðgjafi, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Yfirgripsmikil þekking og reynsla á málaflokkum velferðarþjónustu, svo sem félagslegri ráðgjöf, virkni, þjónustu við innflytjendur og flóttafólk, fátækt o.fl.
- Þekking og reynsla af verklagi og þjónustukerfum miðstöðva Reykjavíkurborgar er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun og þróunarvinnu með áherslu á umbætur og árangursmat.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileiki til að leiða samstarf ólíkra hópa og hagsmunaaðila.
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt19. júní 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðOpinber stjórnsýsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Við leitum að háskólamenntuðum stuðningsráðgjafa í fullt starf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir hárgreiðslustofu Furugerði 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir hárgreiðslustofu Norðurbrún 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Barnavernd Reykjavíkur - Eftirlit
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Fulltrúi á fjármála- og greiningarsviði
Fjarðabyggð

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Verkefnastjóri
Skagi

Starfsmaður á skrifstofu
Hringrás Endurvinnsla

Viðskiptastjóri í ferðaþjónustuteymi
Íslandsstofa

Þjónustu og Verkefnafulltrúi í MICE
HL Adventure

Forstöðumaður þróunar- og þjónustusviðs
Ferðamálastofa

Launasérfræðingur
ECIT Virtus

Sölu- og þjónustufulltrúi
Esja Gæðafæði

Skrifstofuumsjón
Vinnvinn

Ritari/aðstoð á Bjargi Endurhæfingu AK.
Bjarg endurhæfing

Framkvæmdastjóri
Specialisterne