

Umönnun á geðeiningu
Mörk hjúkrunarheimili leitar að jákvæðu og metnaðarfullu starfsfólki við umönnun á geðeiningu heimilisins.
Mörk er lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi. Grundarheimilin fengu jafnlaunavottun árið 2020 og hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og lögð er áhersla á góða teymisvinnu. Starfið felur í sér ýmsa aðstoð og umönnun við heimilisfólk Markar á 20 rýma geðeiningu, gleðjast og njóta samveru með þeim.
Frábær tækifæri fyrir nema í sálfræði, hjúkrun, félagsráðgjöf eða skyldum greinum til að öðlast dýrmæta reynslu og hafa jákvæð áhrif á líf fólks.
Í boði eru störf þar sem unnar eru blandaðar vaktir í góðum hóp starfsmanna. Óskað er eftir starfsfólki í framtíðar- og sumarstörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð Íslenskukunnátta.
- Starfsmaður þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni.
- Starfsreynsla við umönnun geðfatlaðra er mikill kostur.
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að heilsustyrk.
- Stytting vinnuvikunnar.
- Öflugt starfsmannafélag.
Greitt er eftir kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsfólks að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Mannauðsdeild Grundarheimilanna
[email protected]
Við hlökkum til að heyra í þér !
Íslenska










