
Þroskaþjálfi/sérkennari óskast á leikskólann Skerjagarð
Leikskólinn Skerjagarður óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum þroskaþjálfa/sérkennara til starfa í sérkennsluteymi skólans. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna náið með börnum og leggja sitt af mörkum í öflugri teymisvinnu.
Skerjagarður er sjálfstætt starfandi skóli.
Á Skerjagarði er lögð áhersla á faglegt starf þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín í öruggu umhverfi. Allt nám á að veita börnum ánægju og vekja áhuga á að læra meira. Það sem einkennir okkur á Skerjagarði er að við leggjum okkur fram við að skoða okkur í starfi, taka framförum og höfum metnað til að gera faglegt starf betra.
Ef þú hefur áhuga að starfa í fallegum leikskóla í yndislegu umhverfi í Skerjafirðinum. Í leikskóla þar sem jákvæðni, gleði, frumkvæði sköpun og lýðræði er haft að leiðarljósi. Á Skerjagarði er unnið eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru Gleði – Frumkvæði – Sköpun
Skerjagarður er skemmtilegur vinnustaður þar sem ríkir metnaður og gleðin er höfð i fyrirrúmi.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef Alfreðs
Upplýsingar um skólann er að finna á skerjagardur.is
Íslensku kunnátta skilyrði.
Íslenska C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
Framtíðarstarf.
- Tlbúinn að tileikna sér stefnu og starfsaðferðir Skerjagarðs.
- Vinna að menntun og uppeldi leikskólabarna með sérþarfir.
- Skipuleggja og halda utan um sérkennslu í samstarfi við sérkennslustjóra.
- Veita börnum stuðning og fylgja þeim eftir í leik og starfi.
- Taka virkan þátt í sérkennsluteymi skólans.
- Vinna náið með foreldrum, ráðgjöfum og öðru fagfólki.
- Setja saman einstaklingsnámskrár og fylgja þeim eftir.
- Veita atferlisþjálfun eftir þörfum.
- Taka þátt í þróunarvinnu og öðrum verkefnum innan skólans.
- þroskaþjálfamenntun, leikskólakennaramenntun, , sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg.
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta.
- Frítt fæði
- Styttri vinnuvika.
- Íþrótta og samgöngustyrkur
- Annað
Íslenska










